Fylltar kartöflur

5 stórar bökunarkartöflur
125 gr beikon
¼ laukur
½ blaðlaukur
150 gr sveppir
100 gr rifinn ostur ef vill

Kartöflurnar þvegnar og bakaðar í 1 kls við 200°C. Þær teknar út úr ofninum og skorið ofan af þeim lok og þær holaðar að innan með skeið. Beikonið harðsteikt á pönnu, það tekið af pönnunni og laukur og blaðlaukur látnir malla í beikonfeitinni. Sveppunum fínt söxuðum bætt út á pönnuna og þeir brúnaðir í nokkrar mín. Ofninn hitaður í 230°C. Kartöflumaukið innan úr kartöflunum marið í gegn um sigti og blandað saman við beikonið, laukinn og sveppina, fyllingin sett ofna í kartöflurnar osti stráð yfir og þær bakaðar í ofni þar til osturinn er vel bráðinn.