Fylltar bakaðar kartöflur
6 stk
bökunarkartöflur
2 stk vorlaukur
¼ agúrka
½ búnt dill
2 msk matarolía
3 msk sítrónusafi
salt og pipar
125 gr rækjur
90 gr hrein jógúrt
Bakið kartöflurnar í miðjum ofni í 60 mín við 200°C. Skerið agúrkuna eftir endilöngu og fjarlægið kjarnann með skeið. Skerið vorlauk og agúrku í litla bita eða þunnar sneiðar og klippið niður dillið. Blandið saman sítrónusafa, olíu og kryddi og hellið yfir rækjurnar og grænmetið. Skerið lok af kartöflunum þegar þær eru bakaðar og holið þær aðeins að innan með teskeið. Stappið jógúrtinni saman við ¾ hluta þess sem skafið var innan úr kartöflunum. Blandið því saman við grænmetið og rækjurnar, kryddið efir smekk, setjið fyllinguna í kartöflurnar og rétturinn er tilbúinn.