Fylltar súkkulaðiskálar (Konfekt)
2,5 desílítrar rjómi
15 stjörnuanísar
330 grömm súkkulaði
60 grömm smjör
súkkulaðiskálar
ljóst súkkulaði í spónum
Rjóminn er látinn sjóða í potti og anísinn hafður með í suðunni. Súkkulaðið er
sett í skál og rjómanum hellt í gegnum sigtið til þess að sigta anísinn frá.
Síðan er því sem eftir er af rjómanum hellt í gegnum sigtið í skálina en hrært
þar til blandan er orðin að fullu jöfn. Smjörinu er bætt í. Það á að vera við
stofuhita og er því hrært saman við annað í skálinni jafnótt og það bráðnar.
Súkkulaðiskálarnar er til dæmis hægt að kaupa í betri bakaríum. Þeim er
raðað upp á smjörpappír. Súkkulaðimassinn er settur í sprautupoka með sléttri
túðu. Massinn má ekki vera of heitur því þá getur verkið endað illa og hann
brætt skálarnar. Massanum er sprautað sem fyllingu í hverja skál þannig að hann
fylli þær. Ljóst súkkulaði er skorið í spæni og þeim sáldrað ofan á fyllinguna í
súkkulaðiskálunum til skrauts og líka til þess að gefa bragð.