Fyllt egg með sólþurrkuðum tómötum

6 egg
6-8 sólþurrkaðir tómatar í olíu
1-2 tsk kapers
1 skalottlaukur
1 1/2 tsk dijonsinnep
6 msk majónes
15-20 basilíkublöð, skorin í mjóar ræmur

Eggin harðsoðin, kæld og skurnflett. Skorin í helminga eftir endilöngu.
Rauðurnar teknar út og þrýst í gegnum sigti (það má stappa þær með gaffli en
þá verður fyllingin ekki eins slétt). Tómatarnir saxaðir smátt og kapersinn
skolaður og saxaður. Skalottlaukurinn saxaður smátt. Eggjarauður, kapers,
tómatar, skalottlaukur, sinnep og majónes sett í skál ásamt helmingnum af
basilíkunni og hrært vel saman. Þunn sneið skorin neðan af hverjum
eggjahelmingi svo að þeir haldi jafnvægi og þeim raðað á fat. Fyllingin sett
í rjómasprautu með víðum stjörnustút og sprautað í eggjahelmingana, eða sett
í þá með teskeið. Skreytt með afganginum af basilíkunni og síðan borið fram,
t.d. með ristuðu brauði.