Einföld kalkúnafylling

1 franskbrauð

1 soðin kartafla

2 bollar kjúklingasoð

1 laukur

3 stilkar sellerí

100 g sveppir

2 tsk. kjúklingakrydd

malaður svartur pipar

Steikið lauk, sellerí og sveppi saman á pönnu. Fjarlægið skorpuna af brauðinu og skerið það í teninga. 

Setjið brauðið út í hjá grænmetinu og þegar allt er farið að hnoðast saman bætið þá kjúklingasoði smám saman út í og kryddið.