Eggjakaka með spínati, chili og kartöflum

 

4 heil egg

¼ lítri fjörmjólk

1 stk. bökunarkartafla,

skræld og skorin í teninga

1 chilipipar, fræhreinsaður og fínt saxaður

200 g spínat

Kartöfluteningar steiktir á pönnu þar til þeir verða mjúkir. Spínati bætt út á ásamt chilipipar. Egg og fjörmjólk pískað saman og hellt yfir pönnuna. Eldað í ofni við 180°C í átta mínútur. Salt og pipar eftir smekk, og gott er að setja ost yfir.