Eggjabrauð eða "French toast"
1 tsk. kanill
¼ tsk. múskat
2 msk. sykur
4 msk. smjör
4 egg
¼ bolli mjólk
½ tsk. vanilludropar
8 sneiðar af góðu franskbrauði
½ bolli hlynsýróp
Setjið kanil, múskat og sykur í litla skál. Bræðið smjörið á meðalháum hita á
meðan kanilblandan, vanilludropar, mjólkin og eggin eru þeytt saman. Setjið
blönduna í
rúmgott mót og dýfið brauðsneiðunum ofan í. Steikið sneiðarnar í smjörinu á
pönnu þar til þær verða gullbrúnar báðu megin. Berið fram með hlynsýrópi.
