Egg með fyllingu
8 egg, harðsoðin
100 g túnfiskur í olíu
1 msk kapers
1/2 dl sýrður rjómi eða majónes
rifinn börkur af 1 sítrónu
koníak, eftir smekk
1/2 tsk karrí
salt
nýmalaður pipar
Fjarlægið eggjaskurnina og skerið eggin í tvennt eftir endilöngu. Takið rauðurnar úr, saxið tvær af þeim en setjið hinar í matvinnsluvél, ásamt túnfisk, kapers, sýrðum rjóma, sítrónuberki, koníaki og kryddi og maukið. Notið olíuna af túnfiskinum til að þynna maukið en gætið þess þó að það verði ekki of þunnt. Fyllið hvíturnar með maukinu og raðið þeim á disk. Stráið söxuðu eggjarauðunum yfir. Skreytið að vild, t.d. með salatblöðum, kapers eða ólífum.