Dönsk lifrakæfa að hætti Nönnu Rögnvaldar
500 g svínalifur
200 g svínaspekk
50 g smjör
50 g hveiti
125 ml mjólk
250 ml gott kjötsoð (eða vatn og kjötkraftur)
1 stórt egg
1 1/2 laukur
2 hvítlauksgeirar
6 ansjósuflök (má sleppa)
lauf af 3-4 timjangreinum
1/2 tsk allrahanda (helst nýmalað)
3 tsk salt, eða eftir smekk
e.t.v. beikonsneiðar
Skerið lifrina og spekkið í bita. Hakkið spekkið sér í hakkavél og setjið til
hliðar (ef hakkavél er ekki fyrir hendi má skera það mjög smátt með hníf og
setja svo í matvinnsluvél). Hakkið lifrina eða maukið í matvinnsluvél, fínt eða
gróft eftir smekk. Bræðið smjörið í potti, hrærið hveitið saman við og bakið upp
í jafning með mjólkinni og kjötsoðinu. Setjið spekkið út í og hrærið vel. Látið
jafninginn kólna. Hitið ofninn í 175°C. Saxið laukinn og maukið í matvinnsluvél
ásamt hvítlauk, ansjósum, eggi og kryddi. Bætið lifrinni og jafningnum út í og
látið vélina ganga þar til allt hefur blandast vel. Hellið blöndunni í eitt
stórt form eða nokkur minni og leggið beikonsneiðarnar ofan á (eða steikið þær á
pönnu og leggið ofan á þegar kæfan er tilbúin). Bakið kæfuna í ofninum í 30-45
mínútur eftir stærð (það má líka frysta hana og setja hana svo beint í ofninn en
þá þarf hún 15-20 mín í viðbót). Í staðinn fyrir allrahanda mætti líka nota
negul og engifer á hnífsoddi, og það á ekki að skera piparinn við nögl. Best er
að athuga hvort kæfan er hæfilega krydduð með því að steikja svolitla lummu á
pönnu og smakka.