Djúpsteiktir laukhringir

2 stórir laukar
orlý-deig
olía til steikingar
hveiti

Orlýdeig
3 dl pilsner eða vatn
2 msk sykur
1 msk salt
1 tsk olía
1 eggjarauða
hveiti
1 eggjahvíta

Pilsner (vatn) sykur, salt, olía og eggjarauða sett í skál og blandað saman, þykkt með hveiti. Blandan á að vera álíka þykk og pönnukökudeig. Blandan látin standa í 1 kls. Eggjahvítan stífþeytt og henni blandað saman við rétt fyrir steikingu.
Áður en laukhringirnir eru steiktir er þeim velt upp úr hveiti og síðan upp úr orlýdeiginu. Gott er að nota kjötgaffal þegar hringirnir eru settir út í heita feitina.