Delfí laxapate

200 g Delfí ostur
200 g reyktur lax
2-3 msk sítrónusafi
nýmulinn svartur pipar

Setjið innihald í matvinnsluvél og maukið vel saman. Fallegt er að bera þetta paté fram í litlum glösum eða soufflemótum. Tilvalinn forréttur með ristuðu brauði eða snittubrauði. Delfí laxapaté má einnig smyrja á tortillur, þeim er síðan rúllaðu upp, skornar í munnbita og tannstöngli stungið í til að halda þeim uppvöfðum.