Brúnkál 2
½ haus
hvítkál
2 msk sykur
25 gr smjör
½ tsk salt
vatn.
Hvítkálið er skorið í ræmur. Sykurinn bræddur á pönnu við vægan hita, hrært í og þegar hann freyðir er smjörið sett út í. Þegar það er bráðið er kálið sett út í og hrært þar til allt er orðið ljósbrúnt. Þá er kálið saltað og látið malla undir loki í 45 mín. Gott er að hella svolitlu vatni á pönnuna af og til svo að kálið brenni ekki við.