Bláberjasulta
Kíló af berjum á móti 500 - 750 gr af sykri.
Gott er að hafa með stilka og óþroskuð ber til að sultan hlaupi.
Stundum þarf hleypi ef berin eru mjög þroskuð.
Aðalbláberin eru sætari og þá þarf minni sykur.
Fyrst eru berin látin malla í 5 mínútur og svo er sykurinn settur út í og látið
malla áfram í 10 mínútur.
Til að búa til drottningasultu er hindberjum blandað við.
Hér er önnur uppskrift með melatíni
BLÁBERJASULTA
2 kg bláber
800 g sykur
1 msk. blátt melatín - blandað í 1 msk sykur
Bláber skoluð og látið renna vel af þeim. Þau eru sett í pott ásamt sykri og
soðið við vægan hita í
20 – 30 mínútur. Gott er að merja bláberin létt með kartöflustappara meðan á
suðu stendur. Í
lokin er melatín/sykurblandan sett í pottinn og soðið áfram í eina mínútu, hræra
í á meðan.
Þá er allt tilbúið til að setja í krukkur.
KRUKKUR
Mikilvægt er að þvo krukkur og lok. Eftir þvott hita ég þær í ofni við 100°C í
um það bil hálfa
klst áður en marmelaðið og sultan er sett í þær.