Bananaklattar
2 þroskaðir bananar
2 teskeiðar sítrónusafi
2 teskeiðar lyftiduft
1 teskeið vanilludropar
125 g hveiti
1 matskeið púðursykur
2 aðskilin egg
salt
½ teskeið kanill
125 ml mjólk
Maukið banana með sítrónusafanum. Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og
kanil og bætið sykrinum við. Bætið banananum, eggjarauðum, mjólk, vanilludropum
og örlitlum sítrónuberki út í. Hrærið hvíturnar þar til þær eru mjúkar og
blandið saman við deigið. Steikið á pönnu.
