Bakaður hvítlaukur

Hitið ofninn i 200 gráðu hita. Flysjið ysta lagið af hvítlauknum en skiljið eftir skinnið á einstökum hvítlauksgeirum. Notið hníf og skerið um sentímetra af toppi hvítlauksgeiranna, svo að hver og einn geiri sjáist vel. Setjið hvítlaukinn í eldfast mót og dreifið nokkrum teskeiðum af ólífuolíu yfir rifin, notið fingurna til að vera viss um að hvítlaukurinn sé þakinn olíu. Setjið álpappír yfir mótið. Bakið við 200°C í 30-35 mínútur eða þar til geirarnir eru mjúkir þegar þrýst er á þá. Leyfið hvítlauknum að kólna aðeins svo ekki sé hætta á að brenna sig á honum. Notið lítinn hníf til að skera lauslega í skinn geirans. Kreistið svo geirana úr skinninu og borðið hvítlaukinn eins og hann er. Það er líka bragðgott að stappa hvítlaukinn og nota hann í eldamennsku. Það er til dæmis mjög ljúffengt að dreifa hvítlauknum á fansbrauð, blanda honum við sýrðan rjóma og nota með bökuðum kartöflum eða blanda honum við parmesanost og nota í pasta.