Bakaðar fylltar kartöflur með Delfí hvítlauksmauki (fyrir fjóra)

4 bökunarkartöflur, frekar stórar
2 msk ólífuolía
sjávarsalt
1/2 uppskrift af Delfí hvítlauksmauki (sjá neðar)
4 msk smjör

Delfí hvítlauksmauk

3-4 hvítlauksrif, söxuð smátt (mega vera fleiri)
1/2 búnt steinselja, smátt söxuð
1 dl mjólk eða matreiðslurjómi
nýmulinn svartur pipar
sjávarsalt

Setjið allt innihald ískál og hrærið því vel saman.

Hitið ofn í 200°C. Pikkið í kartöflurnar með gaffli og veltið þeim upp úr olíu og salti. Bakið þær í ofni í u.þ.b. 60 mínútur eða þar til þær eru bakaðar í gegn. Skerið þær í tvennt eftir endilöngu, takið kartöflumaukið úr hýðinu með skeið og setjið í skál ásamt smjöri og Delfí hvítlauksmauki og hrærið vel saman. Fyllið hýðishelmingana með kartöflumaukinu og setjið í eldfast mót. Setjið þær aftur í ofninn og bakið í 10 -15 mínútur. Gott meðlæti með kjöti og fiski eða sem aðalréttur með salati.