Agúrkusnakk
1.stk.
Agúrka
1.dós hrein jógúrt
1.stk. Hvítlauksgeiri
Sjávarsalt
Nokkrar strengjabaunir til skreytingar (má sleppa)
Sneiðið
agúrkuna niður og fjarlægið kjarnann.
Stráið saltinu yfir, látið standa í 5 mín. Og skolið síðan gúrkuna. Saxið
hvítlaukinn fínt og blandið saman við jógúrtið. Raðið gúrkusneiðunum á disk,
hellið jógúrtsósunni yfir (skreytið með strengjabaunum ef vill) og látið standa
í hálfa til eina kls. Í kæli.
Með því að strá grófu salti yfir gúrkuna og láta standa í stutta stund verður
gúrkan stökk.